Innskráningar kubbur

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Desember

15. nóvember 2007 klukkan 13:03

Styttist óðum í prófin eða PRÓFIÐ sem ég fer í Hlæjandi það er 3.des sem þýðir að ég er komin í jólafrí þá ekki leiðinlegt að hafa allan desember útaf fyrir sig. En þar sem ég fer bara í 1 próf þá er ég að drukkna í verkefnum núna en mér finnst það fínt, allavega betra að vera að drukkna núna og eiga frí desember Ullandi Ég ætla að vinna í Oasis í desember og safna smá pening fyrir jólin og auðvitð KÖBEN Gráðugur

Planið framundan:
Nóvember fer í lærdóm
3.des Siðfræðipróf
9.des Jólatónleikar
13-17. des Köben með Ragga mínum
20.des Amma Maggý afmæli og ég fer til Eyja

Annie

Sjónvarp óskast

31. október 2007 klukkan 23:10
Okey það eina sem vantar í íbúðina til þess að hún verði fullkomin er sjónvarp inni í svefniherbergi....

P.s. það stefnir í mjög góða helgi Ullandi

...

28. október 2007 klukkan 19:15

Erla vill blogg og þá er best að hlýða því Hlæjandi

Ég er flutt aftur í Kópavoginn og voða er nú gott að vera aftur komin í sína eigin íbúð með sínu dóti og það besta við þetta allt saman að það er stöð 2 í íbúðinni enda var ég orðin stressuð yfir því að ég myndi missa af 4.seríu af Grey's sem er að byrja núna á miðvikudaginn vúhú Brosandi

Helgin var voða róleg og fór hún að mestu leiti í að þrífa íbúðina, flytja inn og flytja út frá Láru frænku. Ég á nú samt eftir að sakna þess að vera ekki lengur hjá þeim á Fjörugrandanum og fá alltaf heitan mat á kvöldin hehe

En næsta helgi verður ekki eins róleg og þessi en það er afmæli hjá henni Silvíu Björk á föstudaginn og er Erla mín að hugsa um að koma og vera hjá mér alla helgina jeijjj það verður svo gott að fá hana þá leiðist mér ekki einni í íbúðinni á meðan Koss 

Hafið það gott elskurnar......

...

30. september 2007 klukkan 20:48

Ég skellti mér til eyja á fimmtudaginn og Erla Signý var eina sem vissi að ég væri að koma til eyja. Þegar ég kom heim á Túngötuna þá fékk mamma sjokk og spurði hreinlega hvað ég væri að gera í Vestmannaeyjum hehe Svalur

Á föstudaginn var lokahóf yngri flokka ÍBV og var ég að afhenda litlu dúllunum mínum verðlaun fyrir sumarið. 5 flokkur gaf mér svo agalega flotta liðsmynd og kertastjaka. Og svo um kvöldið þá var lokahóf ÍBV í Höllinni. Það var auðvitað ekkert ball og allt var búið um 12 leitið. Við Erla vorum búnar að ákveða að vera bara rólegar á föstudagskvöldinu og taka á því daginn eftir á Lundaballinu en það fór ekki þannig. Við fórum í partý til Andra Ólafs eftir lokahófið og svo fórum við á Lundann.

Setningar helgarinnar:

- Viltu söl
-Áfram Fjölnir
-Þið vinnið bikarleikinn ef þið fáið ykkur söl
-Förum á Prófastinn
-Þið verðið þá að redda okkur Fjölnisbúning annars mætum við ekki

Á laugardaginn þá var Lundaball heima og var nú alltaf stefnan að fara á það ball. En vegna mikillar ölvunar kvöldið áður þá gátum við Erla ekki hugsað okkur að fara á ballið. Við bara heim til Guðbjargar að knúsa lilluna hennar og guð minn góður hvað hún er sæt. Maður verður bara sjúkur þegar maður heldur á svona litlu barni. Við kíktum líka aðeins heim til Önnu Kristínar en þar voru nokkrar afródítur á leiðinni á Lundaball. Silvía Björk var þar í fullu fjöri og auðvitað tók hún nokkur atriði úr Stellu í Orlofi.

En helgin var hreint frábær í alla staði og alltaf jafn gott að koma heim til mömmu og pabba.

Sú næsta verður ekki síðri en Steinunn og Finnur ætla að halda innflutningspartý og Erla er á leiðinni í bæinn. Verður eflaust brjálað fjör enda gerist alltaf eitthvað klikkað þegar við Erla djömmum saman eins og á föstudaginn en við tölum ekkert meira um það hérna hehehe

...

24. september 2007 klukkan 18:57
Seinasta helgi var frábær í alla staði eða svna fyrir utan nokkur atriði sem skipta ekki eins miklu máli, munum bara það skemmtilega Svalur

En á föstudaginn þá var bjórkvöld í skólanum og hittumst við heima hjá Fríðu bekkjarsystur, þaðan var haldið á Glaumbar þar sem bjórkvöldið var, fínasta skemmtun. Steinunn Hödd og Sara voru á Gauk á stöng á einhverju bjórkvöldi með sínum skóla og þær kíktu yfir. Þá byrjaði fjörið fórum af Glaumbar og fórum á einhverja staði byjuðum á Hverfis, fórum á Oliver (hefði betur sleppt því, endaði kvöldið með klór í framan Öskrandi), fórum síðan á B5 og eruð þið ekki að grínast. Samt voru Steinunn og Sara farnar heim þegar ég, Lena og Arna fórum á B5. Það var nú upplifun útaf fyrir sig. Hittum eigandann og já við drukkum frítt eins og við vildum. Lena átti setningu kvöldsins en hún var sú: ÞAÐ ER NÚ LÍKLEGT hehehe. Við vorum nefnilega ekki alveg að trúa því að þetta væri eigandinn en við komumst síðan fljótt að því að hann var eigandinn þegar þjónarnir þjónuðu okkur eins og við værum kóngafólk Hlæjandi. Við fórum síðan á Hressó og það var bara prump miðað við B5 Hlæjandi

Við Arna plötuðum síðan einhvern gaur til að taka Taxa með okkur og auðvitað var hann herramaður og borgaði bílinn, hvað annað Svalur

Á laugardaginn fórum við Arna síðan í partý til Víðis og við fórum á Papana á Nasa, það var bara ágætt ball þó svo að ég hafi skemmt mér miklu betur á föstudaginn. Ég labbaði svo ein heim, en ég fór að hugsa í gær að maður má ekki labba svo ein heim. Ég var ekki neitt stressuð þegar ég labbaði og ég var sko ekkert að fara einföldustu leiðina heldur þræddi ég öll skúmasundin í RVK.

Það eru komnar myndir síðan um helgina á síðuna

Hafið það gott Koss


Veit ekki alveg hvað var í gangi þarna en klárlega eitthvað mjög fyndið


Jájájá



Takk fyrir lánið á myndunum Arna en það eru miklu fleiri myndir á síðunni hennar http://picasaweb.google.com/arnasigu/Djamm21Og22Sept

Nýjar myndir

30. ágúst 2007 klukkan 21:51
Jæja þá er ég loksins búin að setja myndir inn á síðuna frá því á þjóðhátíðinni.

Hægt er að sjá þær hérna á síðunni og einnig á myspace síðunni minni myspace.com/annastef

Það stefnir í djamm um helgina hjá okkur Steinunni það verður stuð eins og alltaf þegar við hittumst Hlæjandi



Pabbi afmælisbarn dagsins...

27. ágúst 2007 klukkan 21:27
Jæja skólinn byrjaði í dag og lýst mér bara mjög vel á veturinn sem framundan er. Ég er eiginlega bara fegin að vera byrjuð aftur þá kemst smá regla á lífið aftur. Ekki þessi leti sem er búið að einkenna sumarið, við Hörður erum meira að segja byrjuð að æfa í Laugum og nú á að taka á því í vetur ekki veitir af eftir að hafa ekki hreyft sig í allt sumar.

En pabbi gamli á afmæli í dag. Til hamingju með afmælið pabbi :*** (ég hef nú samt ekki mikla trú á því að þú sjáir þessa kveðju mína)


Hérna eru félagarnir pabbi og Jökull á veitingastað í Boston


Þessi er tekin af okkur á jólunum 06

Svo var hún Guðbjörg Erla að eignast litla prinsessu þann 26 ágúst. Elsku Guðbjörg og Ágúst innilega til hamingju með litla gullið ykkar, hún er alveg yndisleg :* Gangi ykkur allt í haginn í þessu nýja hlutverki ykkar. Og Erla til hamingju með litlu frænku án efa stoltasta frænkan um þessar mundir Hlæjandi


Hérna eru þær saman frænkurnar þrjár (Takk Erla fyrir lánið Brosandi)

Komið gott í bili Svalur

Allt að bresta á

24. ágúst 2007 klukkan 15:22
Þegar ég opnaði póstinn minn áðan þá sá ég að fyrstu glærurnar í Siðfræði eru komnar inn á Uglu og það þýðir bara eitt, skólinn er alveg að fara að byrja. Ég hlakka hins vegar voða til að byrja í skólanum sérstaklega til að hitta allar stelpurnar aftur það verður þó hálf skrýtið að hafa Elínu og Hildi ekki í vetur....

En ég er á fullu að pakka niður og ég er endalaust að finna föt sem eru falin inni í fataskáp sem ég er hreinlega búin að gleyma í allt sumar.

Góða helgi allir saman Glottandi

...

20. ágúst 2007 klukkan 16:24

Sumarið að verða búið og ég hef ekki bloggað í allt sumar, ákvað að taka mér smá pásu frá þessu bloggi...

En sumarið er búið að vera æðislegt í alla stað, þjóðhátíðin var hreint frábær og verður erfitt að toppa þessa. Hrafnhildur kom til mín á þjóðhátíðina og var hún að koma í fyrsta skipti á þjóðhátíð og ég held að henni bara fundist gaman mér fannst hún samt fara aðeins of snemma heim öll kvöldin en þetta kemur hjá henni á næstu þjóðhátíð þá verður hún búin að safna sér orku í allt þetta fjör Hlæjandi

Helgina eftir þjóðhátíð þá skruppum við Erla til Hornafjarðar. Það tók Erlu mjög langan tíma að sannfæra mig um að koma með sér en að lokum þá gafst ég upp á röflinu í henni og ég skellti mér með henni og ég sé sko alls ekkert eftir því. Við höfum talað um það í mörg ár að fara saman til Hornafjarðar en aldrei hefur orðið af því. Það var flugeldasýning í Jökulsárlóninu og það var ekkert smá flott, við reyndar misstum af byrjuninni en það reddaðist, eftir flugeldasýninguna þá fórum við á ball sem var haldið aðeins fyrir utan Höfn er bara ekki viss hvar það var.

Um helgina þá kláraðist fótboltasumarið hjá mér og er þetta sumar búið að einkennast af keppnisferðum upp á land. Ég er búin að vera heima 4 helgar í allt sumar.



Jæja Steinunn ég er búin að blogga bara fyrir þig mín kæra Svalur

Það er komið sumar :)

19. apríl 2007 klukkan 16:05
Gleðilegt sumar kæru vinir nær og fjær Koss
Sumarið byrjar svo sannarlega vel enda frábært veður úti. En ég sit inni að læra en það fylgir því víst bara að vera í skóla að maður þarf að læra Hissa ég er reyndar svo heppin að ég verð að vinna úti í sumar þannig ég get ekki kvartað Óákveðinn

Hafið það sem allra best í dag og alla aðra daga
Kv. Anna Fríða sem er í sumarskapi Svalur